um fundarstjórn.
Forseti. Það er af gríðarlega mörgu að taka hérna í nákvæmlega þessari umræðu. Stundum erum við þingmenn æstir en af góðu tilefni, það er einfaldlega þannig. En það er mjög algengt að ráðherrar komi þá og bendi á: Æ, hann er svo æstur. Hann hlýtur að vera ómálefnalegur. Það er svona klassísk vörn. Maður má alls ekki vera æstur, þá er maður einhvern veginn ómálefnalegur og sá sem er með leiðindin. Nei, þegar komið er með ómálefnalegar dylgjur, t.d. um formann Viðreisnar þegar hún var sjávarútvegsráðherra í heila tíu mánuði, að hún hefði ekki gert neitt heila tíu mánuði í stjórn sem sprakk út af uppreist æru, að það sé einhvern veginn dómur yfir henni eða hennar flokki að gera ekkert í sjávarútvegsmálum er bara alveg fáránlegt og mjög ómálefnalegt að leggja slíkt fram. Og að sjálfsögðu er tilefni til að benda á að ráðherra sé einfaldlega með ómálefnalegan flutning í þess háttar umræðu.
Ég hef engan áhuga á þessari umræðu ríkisstjórnarinnar, að vera sífellt að leggja okkur þingmönnum orð í munn, eins og hæstv. orkuauðlinda og — æ, það er flókið — loftslagsráðherra gerði líka hérna í óundirbúnum fyrirspurnum.