152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:39]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Ég vona að frú forseti virði það við mig að ég kippti mér nú ekkert upp við að vera kallaður eitthvert lið og hef oft verið kallaður það. En ég hef samt grun um að forseti hefði barið í bjölluna ef þingmaður hefði notað þetta orð um ráðherra og bið hana að gera grein fyrir því af hverju hún brást ekki við. Kannski ættum við að vera að ræða það sem mestu máli skiptir í tengslum við þessa umræðu og það eru ítrekaðar yfirlýsingar hæstv. ráðherra um hvaða aðgerðir hún er tilbúin til að ráðast í og að hún hafi fullan stuðning hjá formanni sínum og þingmönnum Framsóknarflokksins. Hér sitja tveir þingmenn í salnum. Hér situr hæstv. ráðherra þingflokks Framsóknarflokksins og frú forseti er líka Framsóknarmaður og gæti beðið einhvern að hlaupa í skarðið fyrir sig ef eitthvert af þessu góða fólki kæmi hérna upp og staðfesti það að þau styddu þessar hugmyndir hæstv. ráðherra.