152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:41]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég fann mig knúna til að koma hingað upp og tjá mig undir fundarstjórn forseta. Ég er svolítið hissa, verð ég að segja, á umræðunni hérna vegna þess að hér er verið að gagnrýna hæstv. ráðherra fyrir það hvernig hún kom fram í ræðupúlti. Hún verður sjálf að svara fyrir það sem hún segir, ég ætla ekki að gera það hér og nú. En umræðan í kjölfarið vekur mig samt sem áður til umhugsunar. Hér er stjórnarandstaðan að ræða um að vera málefnaleg og gæta orða sinna og bera virðingu fyrir þinginu en mín tilfinning er sú að það virðist ekki alveg vera stefnan hjá stjórnarandstöðunni. Ég bið ykkur öll og okkur öll um að sýna þinginu virðingu, sýna hvert öðru virðingu. Verum málefnaleg og gætum orða okkar. Ég hef persónulega orðið vitni að frammíköllum og öðru sem komið hefur fram, bæði í dag og undanfarna daga, og ég tel það ekki vera til að auka virðingu þingsins. (ÁsF: Þú ert ekki búin að vera nógu lengi.)— Kannski ekki, nei.