um fundarstjórn.
Forseti. Ég greip fram í fyrir hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum áðan, einfaldlega af því að hann var að fara með rangt mál. Ég minnti hann á það, hann fór með rangt mál. Hann lagði hv. þm. Halldóru Mogensen orð í munn. Hún sagði ekki það sem hæstv. ráðherra sagði að hún hefði sagt. Það finnst mér vera mjög mikil ókurteisi og fyrir neðan virðingu ráðherra. Þannig að það er stundum tilefni til að minna ráðherra á slíka vanvirðingu.
Ég tek líka undir með hv. þm. Ingibjörgu Isaksen og vona að hún þurfi ekki að upplifa það að heyra að hún sé ekki búin að vera hérna nægilega lengi, eins og hv. þm. Ásmundur Friðriksson kallaði fram í áðan. Við þurfum ekki að læra þessa gömlu slæmu siði. En til þess að gera það ekki þurfum við að taka á rót vandans og ég hef upplifað sjálfur, á öðru kjörtímabili mínu hér, að það eru því miður (Forseti hringir.) þau sem hafa verið hér lengst sem haga sér verst. Við sem reynum (Forseti hringir.) að bregðast við því á einhvern hátt erum sökuð um æsing.