um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég hélt eiginlega bara í barnslegri trú minni að við værum öll í sama liði. Ég veit ekki hvort það er barnalegt hjá mér að koma hingað inn og halda að við séum í einu liði að reyna að gera það besta fyrir samfélag okkar þar sem við ætlum öll að búa og viljum að fólkið í landinu þrífist vel og við öll saman. Að við séum í mismunandi liði og að tala um þetta lið, mér finnast þetta ekki vera umræður sem ég hélt að myndu fara fram á Alþingi, að fólk talaði svona við hvert annað. Það skortir virðingu og það skortir traust á Alþingi og það skortir traust á að við séum í sama liði og viljum öll gera gott og gera það saman. Þetta er alla vega ekki Alþingi til málsbóta.