um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Einhvern veginn finnst mér skorta upp á samtal á milli þings og ráðherra. Mig langar til að eiga samtal við ráðherrana sem fara með það vald sem búið er að fela þeim af þinginu og eiga að framfylgja því sem þingið hefur falið þeim, þannig að við getum svolítið áttað okkur á því á hvaða vegferð við erum og á hvaða vegferð ráðherrarnir eru. Ég upplifði það þannig að maður er settur skör lægra inni í þingsal en ráðherrarnir. Eins og hefur verið bent á sitja þeir hér meira eða minna í símanum allan tímann með tyggjó, sem er búið að banna mér að vera með í munninum. Þeir nota það alveg óspart þegar þeir sitja hérna. Ég held að ég muni leggja það til og styðja þá tillögu sem komið hefur fram um að við þurfum að breyta þessum ávarpsorðum þannig að ekki sé verið að setja okkur þingmenn skör lægra en þessa ráðherra.