152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:55]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Óveðurslægðin gengur víðar en hérna í kringum okkur. Ég held að hún sé komin inn í þingsal. Hér hefur verið tíðrætt um virðingu Alþingis. Mig langar bara til taka fram að það er frétt á vef Alþingis þar sem kemur fram að traust almennings á Alþingi hefur ekki verið hærra síðan fyrir hrun og er nú 42%. Mig langar líka til að segja að hér hafa ýmis orð fallið, bæði hjá stjórnarandstöðu og stjórnarþingmönnum og ráðherrum, og ég held að staðan í þeim leik sé 1:1 vegna þess að hér var hv. þingmaður minni hluta sem kallaði ráðherra risaeðlu. Ég held að nú sé mál að linni. Það eru mikilvæg málefni á dagskrá þingsins, t.d. sérstök umræða um geðheilbrigðismál og mál frá ríkisstjórn sem hæstv. ráðherra er að fara að flytja. Ég held við ættum að láta staðar numið í þessari vitleysu.