152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:56]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég verð eiginlega koma upp og segja að það hefði svo auðveldlega verið hægt að koma í veg fyrir þetta ef ráðherra hefði bara komið hérna upp í pontu og brotið odd af oflæti sínu og hreinlega beðist afsökunar. Mér hefði alveg fundist það allt í lagi sem viðbrögð við þessu. En það er líka allt í lagi að ráðherrar átti sig á valdamismuninum í þessum sal. Þegar við komum upp í pontu og spyrjum sjálfsagðra spurningar — ég veit að við tölum oft óvarlega og það eru alls konar orð sem við hreytum fram í salinn en þetta var sérstaklega mikið. Ég veit ekki alveg hvert rétta orðið er. (Gripið fram í: Persónuárás.) Já, persónuárás og virðingarleysi að óþörfu. Það hefði verið svo auðvelt að koma upp og segja bara: Ég biðst afsökunar á þessu, ég hefði ekki átt að tala svona. Þá væri þetta búið. (Gripið fram í: Einmitt.) Það hefði verið virðingarvert að gera það. (Gripið fram í: Nákvæmlega.) Stundum þarf aðeins að taka egóið sitt, leggja það til hliðar (Forseti hringir.) og hugsa hvað sé heildinni fyrir bestu þegar kemur að umræðunni hérna inni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)