geðheilbrigðismál.
Frú forseti. Við skulum aðeins horfa til fullorðna fólksins og ungmenna. Á síðustu fimm árum féllu 55 einstaklingar fyrir eigin hendi á aldrinum 18–29 ára. Veltum aðeins fyrir okkur hvernig stjórnvöld eru að bregðast við þessum hræðilegu tölum. Ég hefði haldið að það hefði verið farið í heildarendurskoðun á geðheilbrigðiskerfinu okkar og aldeilis spýtt í lófana í þeim málum. En hvað gerist? Ekkert. Mig langar einnig að tala um þá staðreynd að á bráðaþjónustu geðdeildar Landspítala leituðu um 6.000 manns á síðasta ári og bráðaþjónustutilfellin voru um 37.000. Ekki hafa þeir hugmynd um hversu mörgum var vísað frá en sögusagnir segja að fullt af fólki sé vísað frá geðdeild Landspítalans. Á síðasta ári leituðu 360 einstaklingar að meðaltali á mánuði á bráðamóttöku geðdeildar. Utan opnunartíma leituðu að meðaltali 92 einstaklingar á bráðamóttöku í Fossvogi þannig að 25% af þeim heildarfjölda sem leitar á bráðamóttöku fer í Fossvoginn þar sem ekki er sérhæft starfsfólk við geðheilbrigðisvanda. Þar eru aðstæður ekki góðar til að taka á móti fólki með geðsjúkdóma. Það er til háborinnar skammar að það sé lengur opið í verslunarmiðstöðvum landsins en á geðdeild Landspítalans. Það sem mér blöskraði þó mest að sjá í svari við fyrirspurn minni til hæstv. heilbrigðisráðherra var að geðdeildir á sjúkrahúsum landsins hafa ekki hugmynd um það hvort einstaklingar sem leita til þeirra vegna sjálfsvígshugsana eða annars taki sitt eigið líf eftir vistun eða þjónustu á spítalanum. Það að fylgja ekki eftir fólki í mögulega ár eða lengur sem telst í hættu á að taka eigið líf er ótrúleg vanræksla af hálfu stjórnvalda. Ef þú ert með einstakling t.d. í krabbameinsmeðferð gildir ekki það sama. Þá er einstaklingnum alltaf fylgt eftir. Þetta er eins og að vera með manneskju í lyfjameðferð og fylgja því ekki eftir hvort lyfin virki. (Forseti hringir.) Við vitum ekki hvort geðheilbrigðiskerfið okkar virkar. Það virkar ekki, það er deginum ljósara. (Forseti hringir.) Hvað ætli þetta aðgerðaleysi í geðheilbrigðismálum kosti okkur almenning?