152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

geðheilbrigðismál.

[17:39]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og langar að beina fókusnum að sálfræðiþjónustu innan heilsugæslunnar. Staðreyndin er sú að á sama tíma og tölur sýna að fjármagn til grunnþjónustu þar hefur dregist saman í stjórnartíð þessara ríkisstjórnarflokka hefur ljósið í myrkrinu verið aukin áhersla á uppbyggingu geðheilsuteyma innan heilsugæslunnar. Því tengt hefur verið unnið að öflugri uppbyggingu þar hvað varðar sálfræðiþjónustu en nú virðast blikur á lofti á lokametrum þeirrar uppbyggingar þar sem svo virðist sem samræmd og gagnreynd meðferð sálfræðinga sé ekki lengur fókusinn heldur frekar mun styttri meðferð með það að markmiði að fækka fólki á biðlistunum hraðar. Mér er kunnugt um að yfirstjórn heilsugæslunnar hefur verið gert viðvart um áhyggjur fagfólks vegna þessara breytinga.

Ég hef áhuga á því að heyra frá hæstv. ráðherra hvort honum sé kunnugt um þessar breytingar og þá óánægju sem hún hefur vakið meðal fagfólks. Mér þykir við hæfi í því sambandi að minna á sneypuför heilbrigðisyfirvalda vegna illa ígrundaðra breytinga í tengslum við uppbrot á leghálsskimanaþjónustu við konur og vonandi hefur verið dreginn sá lærdómur af því að það þarf að ígrunda breytingar mjög vel og menn þurfa helst að sjá endamarkið. Hér virðist sem markmiðið með þessum fyrirhuguðu breytingum sé einfaldlega og eingöngu að stytta meðferðartíma, þvert á klínískar ráðleggingar, til að vinna hraðar á þeim biðlistum sem byggst hafa upp. Þannig er verið að brjóta niður samþættingu starfsins. Þetta er samþætting sem hefur verið byggt undir til að tryggja að fólk fái sömu gagnreyndu sálfræðimeðferðina hvort sem það mætir inn á heilsugæslustöð í Garðabæ eða í Breiðholti, svo dæmi sé tekið, þannig að aðgengi að gagnreyndri sálfræðimeðferð verður ekki endilega jafnt á milli heilsugæslustöðva ef þetta verður reyndin. Við viljum öll, trúi ég, draga úr biðlistum en það er auðvitað ekki sama hvernig það er gert. Mér þætti gott, ef hæstv. ráðherra hefur vitneskju um þetta mál, að hann (Forseti hringir.) gæti varið smátíma í að koma inn á það hér í lokin hvernig staðan er.