geðheilbrigðismál.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Anna Kolbrún Árnadóttir ásamt fleiri þingmönnum lagði fram á ný beiðni um skýrslu frá ríkisendurskoðanda um heilbrigðisþjónustu á landinu. Þessi skýrslubeiðni var endurflutt frá fyrra þingi þar sem skýrslan barst ekki þinginu. Óskað er eftir því að í skýrslunni komi fram stefna, skipulag, kostnaður og árangur í geðheilbrigðismálum. Geðhjálp hefur verið með á síðustu árum öflugar herferðir sem hafa vakið athygli almennings á mikilvægi geðheilbrigðisþjónustu. Árið 2020 rak Geðhjálp herferð undir yfirskriftinni 39, sem táknaði fjölda sjálfsvíga árið 2019 og að meðaltali undanfarin ár. Með herferðinni voru lagðar til níu aðgerðir til að setja geðheilsu í forgang. Fyrsta aðgerðin er sú að gerð verði heildarúttekt á umfangi og framkvæmd geðheilbrigðisþjónustu. Þar segir að úttektin sé nauðsynleg svo hægt sé að ná utan um málaflokkinn og að auka samhæfingu þeirra stoða sem eru á hendi ríkisins. Það er mikilvægt að við fáum þessa skýrslu sem fyrst svo hægt sé að átta sig á stöðunni.
Í dag er á dagskrá þingsins frumvarp frá hæstv. heilbrigðisráðherra til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Í dag fengum við þingmenn erindi frá stjórn Landssamtaka Geðhjálpar þar sem vinnubrögð ráðherra hafa komið Geðhjálp og umbjóðendum samtakanna verulega á óvart. Geðhjálp gerði athugasemdir við ráðherra í lok síðasta árs vegna skorts á samráði um frumvarpið. Ráðherra virtist virða sjónarmið Geðhjálpar og hugðist kalla eftir samráði áður en frumvarpið yrði lagt fram. Hins vegar var ekkert frekar samráð haft við Geðhjálp og frumvarpið var lagt fram. (Forseti hringir.) Geðhjálp hefur kallað eftir því að frumvarpið verði dregið til baka og haft verði samráð við hagaðila.