geðheilbrigðismál.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og þakka fyrir svör ráðherra. Áður en hæstv. ráðherra varð hæstv. ráðherra var hann hv. formaður fjárlaganefndar og því manna gleggstur þegar kemur að krónum og aurum. Nýgengi örorku er mest í hópi þeirra sem eiga við geðrænar áskoranir. Þegar sjúkraþjálfun var sett inn í sjúkratryggingakerfið dró mjög úr nýgengi örorku vegna stoðkerfisvanda og það má ætla að það sama verði uppi á teningnum þegar stjórnvöld fjármagna loksins vilja Alþingis um að setja sálfræðiþjónustu inn í greiðsluþátttökukerfið.
Frú forseti. Við eigum heimsmet í geðlyfjanotkun og aukning notkunar hjá börnum er sérstakt áhyggjuefni. Ávísun á kvíða- og þunglyndislyf meðal barna jókst um tæp 20% á tveggja ára tímabili, milli 2018 og 2020. Ávísun á ADHD-lyf jókst um rúm 80% á sama tímabili. Það er óhuggulegt að horfa á biðlista, sagði hæstv. ráðherra. 13 ára drengur er á margra mánaða biðlista, líklega 12 mánaða biðlista, eftir ítrekaðar sjálfsvígstilraunir á síðustu tíu mánuðum. Þetta er staðreynd. Fjármagn til málaflokksins geðheilbrigðismál er líklega 13% af þörfinni, 15%, á sama tíma og sjálfsvíg barna og ungs fólks hafa aukist verulega. Í aldurshópnum 18–29 ára var hlutdeild sjálfsvíga í andlátum þeirra á árinu 2016–2020 36%. Það voru 36% þeirra sem létust vegna þess að þau tóku ákvörðun um að taka eigið líf. (Forseti hringir.) Hvaða fjárhæð ákvað hæstv. heilbrigðisráðherra að setja í málaflokkinn? Jú, líklega það sem samsvarar verði á einni íbúð á Hafnartorgi.