152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

geðheilbrigðismál.

[17:46]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil ítreka þakkir fyrir þessa umræðu og fjölmargar góðar ábendingar og spurningar sem hafa komið fram. Hér hefur aðeins verið komið inn á áherslu á geðheilbrigðisþjónustu og ég kom í fyrri ræðu að aukningunni í þeim efnum og viðbrögðum í þessum faraldri. Ég get dregið hér fram að af hálfu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins voru tekin 70.000 netspjöll árið 2020 samanborið við 3.000 árið á undan. Það er auðvitað hægt að túlka þessar upplýsingar margvíslega, bæði þannig að hér hafi verið brugðist við en það má líka horfa á þessar gríðarlegu tölur út frá þörfinni fyrir þjónustu. Ég vil líka koma því að, af því að hér hefur verið spurt út í samninga við sálfræðinga og um þessa takmörkuðu fjármuni, sannarlega, 250 milljónir, sem eru til ráðstöfunar, að samkvæmt mínum bestu upplýsingum er mjög góður gangur í þeim viðræðum um skynsamlega og góða ráðstöfun á þeim takmörkuðu fjármunum.

Hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir fór yfir eftirfylgni eftir meðhöndlun og ég horfi til þess. Ég þekki þetta ekki nákvæmlega, ég skal alveg viðurkenna það, en ég mun alveg örugglega spyrja sérfræðinga mér fremri í þessu. En fyrir mér er þetta þessi faglega nálgun um að þriðja stigs aðgerðir þurfi endurhæfingu á öllum sviðum. (Forseti hringir.) Þannig að ég mun sannarlega spyrja að þessu. Ég kemst því miður ekki yfir fleira en fjölmargt skrifaði ég hjá mér úr þessari góðu umræðu sem ég þakka fyrir.