um fundarstjórn.
Forseti. Dag eftir dag heyrum við í fjölmiðlum sögur af þolendum skelfilegs kynferðisofbeldis og ofbeldis í nánum samböndum. Það er skýr og sterk krafa í samfélaginu um aðgerðir af hálfu löggjafar- og framkvæmdarvaldsins. Fyrir þinginu liggja nú þegar fjórar þingsályktunartillögur og eitt frumvarp þingmanna úr nær öllum flokkum hér á Alþingi, þingmál nr. 16, 20, 173, 207 og 233, sem snerta þessi mál. Öll hafa þau farið í gegnum fyrri og 1. umr. og sitja nú í nefnd.
Virðulegi forseti. Mig langar að fara þess á leit við hæstv. allsherjar- og menntamálanefnd að hún flýti gestakomum og meðferð sinni á þessum málum svo að þingheimur geti sýnt samhug sinn í verki með öllum þeim þolendum sem (Forseti hringir.) hafa þurft að segja erfiðar sögur sínar opinberlega til þess að orsaka þá vitundarvakningu sem orðið hefur hér á landi.