152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:11]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, um beitingu nauðungar. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er nú endurflutt nánast óbreytt. Þó var tekið tillit til breytinga sem hv. velferðarnefnd Alþingis lagði til í júní síðastliðnum. Þar lagði nefndin til breytingartillögur sem fólu í sér minni háttar breytingar á skilgreiningum og nefndin vildi bæta við að aðstandendur sjúklinga yrðu ekki upplýstir um beitingu nauðungar nema sjúklingurinn óskaði þess. Nefndin lagði einnig til að gildistími ákvörðunar um beitingu nauðungar mætti í lengsta falli vera þrír mánuðir, fremur en þeir sex mánuðir sem lagðir voru til í frumvarpinu.

Áður en ég hef yfirferð um efni frumvarpsins tel ég rétt að vekja athygli þingheims á því að þegar frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi lögðust hagsmunasamtök notenda gegn frumvarpinu með þeim ábendingum að skort hefði á samráð við notendur við vinnu frumvarpsins, án þess þó að verulegum efnislegum athugasemdum við frumvarpið hafi verið komið á framfæri. Ég vil þó taka fram að þegar ég tala um efnislegar athugasemdir er auðvitað kannski ekki skýr lína þegar við erum að tala um prinsippafstöðu og hugmyndafræði. Mér er mikið í mun að standa að virku samráði við notendur heilbrigðisþjónustu. Ég hef fundað með hagsmunasamtökum til að ná fram sameiginlegri sýn á þá réttarbót sem frumvarpið sem hér um ræðir færir fram fyrir sjúklinga. Að sama skapi er mikilvægt að Alþingi fái að fjalla um málið og koma að umræðunni um réttindi sjúklinga.

Ég vil árétta mikilvægi þess að stjórnvöld vinni að réttarbótum fyrir fólk í viðkvæmri stöðu. Þessu frumvarpi er ætlað að bæta réttindi sjúklinga, m.a. í samræmi við athugasemdir sem umboðsmaður Alþingis beindi til stjórnvalda í kjölfar eftirlitsheimsóknar hans á þrjár lokaðar deildir geðsviðs Landspítala á Kleppi í október 2018. OPCAT-eftirlit er valfrjáls bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og ómannúðlegri meðferð sem er sinnt með eftirliti og heimsókn á staði þar sem eru einstaklingar sem kunna að vera sviptir, á faglegum forsendum, frelsi sínu. Frumkvæðiseining embættis umboðsmanns Alþingis sinnir þessu eftirliti og lögfræðingur og sálfræðingur sinna þessu hlutverki á vegum umboðsmanns Alþingis.

Heimsókn á réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi, geðsviði Landspítalans, leiddi af sér ábendingar í skýrslugjöf um að lagastoð skorti fyrir beitingu nauðungar, sem auðvitað er beitt í algerum undantekningartilvikum og á faglegum forsendum. Frumvarpið sem ég mæli fyrir hér, og hefur áður komið fyrir Alþingi, er svar við því ákalli og þeim ábendingum sem koma fram í skýrslu umboðsmanns Alþingis.

Ég vil líka draga það fram að í júní 2019 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu þess efnis að fara skyldi fram heildarendurskoðun á lögræðislögum, nr. 71/1997, og var sérnefnd þingmanna kosin til að fara í það verkefni. Þingmannanefndinni er falið víðtækt verkefni í þeirri þingsályktun en nefndinni var einnig gert að flýta eins og kostur er breytingum sem ætlað er að afnema ólögmæta mismunun gegn fötluðum sem sæta ýmiss konar þvingaðri meðferð, frelsissviptingu eða frelsisskerðingu.

Einnig vil ég benda á að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra vinnur að frumvarpi um framkvæmd öryggisráðstafana og öryggisþjónustu en það frumvarp hefur margþætt markmið, m.a. að tryggja að framkvæmd öryggisráðstafana öryggisvistaðra sé í samræmi við mannréttindi og réttaröryggi einstaklinganna sem sæta slíkum ráðstöfunum.

Þegar þetta frumvarp var samið var horft til V. kafla laga um réttindagæslu fatlaðs fólks, nr. 88/2011, sem fjallar um ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk. Enn fremur höfðu fulltrúar heilbrigðisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis samráð um ákvæði frumvarpsins til að tryggja samræmi ákvæða sem fjalla um beitingu nauðungar.

Í ljósi alls þessa er mikilvægt að horfa til þess að samræma reglur og verklag þegar kemur að beitingu nauðungar gagnvart fólki í viðkvæmri stöðu. Í fyrrgreindri skýrslu umboðsmanns Alþingis er því beint sérstaklega til heilbrigðisráðherra að verulega skorti á fullnægjandi lagaheimildir og að umbúnaður sé í núgildandi lögum vegna þeirra inngripa sem eru viðhöfð á þeim deildum Landspítala sem umboðsmaður heimsótti. Umboðsmaður tekur fram í skýrslu sinni að Alþingi þurfi að fá tækifæri til að taka afstöðu til þess í hvaða mæli löggjafinn telji tilefni til að heimila með lögum þau inngrip sem eiga sér stað á heilbrigðisstofnunum. Með framlagningu þessa frumvarps fær Alþingi það tækifæri.

Ég vil beina því nú þegar til hv. velferðarnefndar, í ljósi þess sem ég hef þegar sagt, að skoða þetta frumvarp í samhengi við lögræðislög og frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um framkvæmd öryggisvistunar og, svona eins og kostur er, í samræmi við þá umfjöllun sem málið fær eða þær ábendingar og umsagnir sem munu koma við þetta mál. Ég leyfi mér að leggja áherslu á það að með því að leggja til að fært verði í lög að heimila ákveðið verklag á heilbrigðisstofnunum í undantekningartilvikum er ekki verið að mæla því bót heldur er markmiðið að draga úr beitingu nauðungar, m.a. með því að leggja til að, eins og lagt er til í þessu frumvarpi, sett verði á fót sérfræðiteymi sem er ætlað að veita ráðgjöf til stofnana um aðferðir til að komast hjá beitingu nauðungar og að sjúklingar geti kært ákvarðanir um beitingu nauðungar þegar það á við eða ákvörðun um slíkt er tekin af hálfu sérfræðinga í undantekningartilvikum, eins og það er sett upp í þessu frumvarpi.

Markmið frumvarpsins er að skapa lagaramma um það verklag sem viðhaft er á heilbrigðisstofnunum hér á landi þegar kemur að atvikum þar sem grípa þarf til þvingana, valdbeitingar eða annars konar inngripa í sjálfsákvörðunarrétt, frelsi og friðhelgi einkalífs sjúklinga. Með frumvarpinu eru því lagðar til breytingar á lögum um réttindi sjúklinga sem fela meðal annars í sér bann — og ég ítreka, virðulegur forseti: bann — við beitingu nauðungar. Það er meginreglan.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um réttindi sjúklinga sem fela meðal annars í sér ný ákvæði um skilgreiningu nauðungar og fjarvöktunar, skilyrði sem þurfa að vera til staðar ef læknir tekur ákvörðun um að beita nauðung til að tryggja öryggi sjúklinga, auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa, þar með talið skráningarskyldu tilvika, kæruheimildir og rétt til að bera mál undir dómstóla. Ekki stendur til að auka við úrræði til að beita sjúklinga nauðung heldur er ætlunin að lögfesta skýrar reglur með það fyrir augum að tryggja betur réttindi sjúklinga. Ég held að umbúnaðurinn hér sé til bóta. Ég held að allir séu sammála um það sem veittu málinu umsögn á sínum tíma.

Eins og ég kom inn á áður er frumvarpið liður í viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við athugasemdum sem umboðsmaður Alþingis gerði í kjölfar eftirlitsheimsóknar hans á þrjár lokaðar deildir geðsviðs Landspítala á Kleppi í október 2018. Eftirlitsheimsóknin fór fram á grundvelli svonefnds OPCAT-eftirlits sem felst í óháðum eftirlitsheimsóknum umboðsmanns á staði þar sem frelsissviptir einstaklingar dvelja. Með OPCAT er vísað til valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Með frumvarpinu er einnig brugðist við athugasemdum frá nefnd Evrópuráðsins um varnir gegn pyntingum. Ég ætla að fara með enska heitið hér, með leyfi forseta: European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment. Nefnd þessi hefur ítrekað bent á skort á skýrum lagaramma er viðkemur beitingu hvers kyns nauðungar á heilbrigðisstofnunum hér á landi, ekki síst til að draga úr hættunni á beitingu ómannúðlegrar meðferðar.

Með frumvarpinu stendur ekki til að auka við úrræði til að beita sjúklinga nauðung heldur er ætlunin að lögfesta skýrar reglur með það fyrir augum að tryggja betur réttindi sjúklinga. Verði frumvarpið að lögum skulu heilbrigðisstofnanir og starfsmenn þeirra sem endranær forðast að beita sjúklinga hvers kyns nauðung og ekki grípa til slíkra ráðstafana nema brýn nauðsyn krefji og þá í samræmi við fyrirmæli laga.

Ég ætla að víkja að meginefni frumvarpsins, virðulegur forseti. Þar er lagt til að bætt verði kafla við gildandi lög sem fjallar um bann við nauðung þar sem tiltekið er í hvaða undantekningartilvikum verði heimilt að taka ákvörðun um slíka beitingu nauðungar, skráningu tilvika í sjúkraskrá, málskotsrétt sjúklinga og skipun sérfræðiteymis um beitingu nauðungar. Þá eru jafnframt í frumvarpinu lagðar til nýjar skilgreiningar til viðbótar þeim skilgreiningum sem er að finna í gildandi lögum. Þar sem ætlunin er að bæta við kaflann um bann við nauðung er þörf á því að skilgreina hvað geti talist til nauðungar í skilningi laga um réttindi sjúklinga. Nauðung getur falið í sér líkamlega valdbeitingu, t.d. í því skyni að koma í veg fyrir að sjúklingur skaði sig eða aðra eða að sjúklingi er haldið aðskildum frá öðrum eða aðgangur sjúklings að síma takmarkaður. Einnig er lagt til að bæta við skilgreiningu á hugtakinu fjarvöktun sem felur í sér rafræna vöktun með myndavél eða hljóðnema. Almenna reglan hér er bann við beitingu nauðungar en lagt er til að bætt verði við lögin grein um það að banna beitingu nauðungar á heilbrigðisstofnunum, enn fremur að fjarvöktun herbergja eða vistarvera sjúklings verði bönnuð. Sérstaklega er tekið fram í frumvarpinu að beiting nauðungar í refsiskyni skuli vera óheimil.

Þá er fjallað um undantekningar en lagt er til að í sérstökum einstaklingsbundnum tilvikum sé yfirlækni eða vakthafandi sérfræðilækni heimilt að taka ákvörðun um að víkja frá banni við beitingu nauðungar eða fjarvöktunar. Slík ákvörðun þarf að vera í þeim tilgangi að annars vegar koma í veg fyrir að sjúklingur valdi sér eða öðrum líkamstjóni eða stórfelldu eignatjóni, það á einnig við um fyrirbyggjandi aðgerðir sem ætlað er að forða því að aðstæður komi upp sem geta leitt til líkamstjóns eða stórfellds eignatjóns, og hins vegar að uppfylla grunnþarfir sjúklings, svo sem varðandi næringu, heilsu og hreinlæti.

Áður en yfirlæknir eða vakthafandi sérfræðilæknir tekur slíka ákvörðun um að víkja frá banni við beitingu nauðungar og/eða banni við fjarvöktun ber honum að leita eftir afstöðu sjúklings, eftir því sem við verður komið. Ef sjúklingur óskar þess skal einnig tilkynna nánasta aðstandanda um ákvörðunina eða ef við á lögráðamanni sjálfræðissvipts manns, ráðgjafa nauðungarvistaðs manns eða tilsjónarmanni manns sem vistaður er á heilbrigðisstofnun á grundvelli dóms skv. 62. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Ef um er að ræða sjúkling sem er yngri en 16 ára skal auk þess liggja fyrir upplýst samþykki forsjáraðila en það er akkúrat við þann aldur sem við verðum sjálfstæðir þjónustuþegar heilbrigðiskerfisins.

Ákvörðun yfirlæknis eða vakthafandi sérfræðilæknis um að víkja frá banni við beitingu nauðungar og/eða banni við fjarvöktun skal vera skrifleg og rökstudd og þar skal koma skýrt fram til hvers konar aðgerða hún tekur og tilgreina gildistíma hennar. Þetta er sá umbúnaður sem ég vísaði m.a. til í fyrri ræðu. Ákvörðunin skal vera tímabundin og aldrei veitt til lengri tíma en nauðsynlegt er, þó ekki lengri en til þriggja mánaða í senn. Hér er verið að bregðast við þeim ábendingum sem komu frá hv. velferðarnefnd í umfjöllun um málið á síðasta þingi. Í skriflegri ákvörðun skal greina frá þeim skilyrðum sem sett eru fyrir beitingu nauðungarinnar, svo sem hvernig skuli staðið að henni, hvaða kröfur séu gerðar til starfsmanna sem henni beita og annað sem talið er mikilvægt. Sé tekin ákvörðun um líkamlega valdbeitingu skulu þeir starfsmenn sem að valdbeitingunni koma hafa sótt námskeið þess efnis.

Forstjóri viðkomandi heilbrigðisstofnunar ber ábyrgð á því að tryggt sé að sjúklingi sem sætir ákvörðun um nauðung sé leiðbeint um rétt sinn til að kæra ákvörðun um beitingu nauðungar til sérfræðiteymis um beitingu nauðungar og eftir tilvikum til að bera málið undir dómstóla. Að öðru leyti fer um málsmeðferð eftir ákvæðum stjórnsýslulaga.

Í frumvarpinu er lagt til að heimilt sé að beita nauðung án undangenginnar ákvörðunar ef slíkt er talið nauðsynlegt í því skyni að koma í veg fyrir yfirvofandi líkamstjón, stórfellt eignatjón eða röskun á almannahagsmunum. Tafarlaust skal látið af nauðung þegar hættu hefur verið afstýrt eða ástand er liðið hjá.

Þar sem slíkri nauðung er beitt í undantekningartilvikum skal skrá slík tilvik og skal gerð grein fyrir tilefni þess að nauðung var beitt, hvers eðlis hún var og hvaða hagsmunir voru í húfi. Heilbrigðisstofnanir skulu senda tilvikalýsingu vegna hvers tilviks til sérfræðiteymis um beitingu nauðungar innan viku frá því nauðung var beitt.

Lagt er til að öll tilvik þar sem sjúklingur er beittur nauðung, hvort sem henni er beitt á grundvelli undanþágu eða í neyðartilvikum, skuli skrá í sjúkraskrá. Sama á við þegar undanþágu er beitt vegna fjarvöktunar.

Við skráningu skal greina frá hvernig nauðungin eða fjarvöktunin fór fram, hversu lengi hún stóð yfir, hverjir önnuðust framkvæmd hennar og önnur atriði sem þýðingu hafa, svo sem hvort meiðsl eða eignatjón hafi hlotist af.

Heilbrigðisstofnanir skulu mánaðarlega senda sérfræðiteymi skýrslu um beitingu nauðungar eða fjarvöktunar. Upplýsingar um beitingu nauðungar í neyðartilvikum skulu sendar sérfræðiteyminu innan viku frá tilviki þegar nauðung var beitt.

Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að heilbrigðisráðherra skipi allt að sjö einstaklinga til fjögurra ára í senn í sérfræðiteymi um beitingu nauðungar. Sérfræðiteymið skal skipað a.m.k. einum sérfræðilækni, einum lögfræðingi sem hefur þekkingu á mannréttindamálum og fulltrúa sem hefur kynnst beitingu nauðungar af eigin raun. Lagt er til að varamenn skuli vera jafnmargir og uppfylla sömu skilyrði og aðalmenn. Minnst þrír fulltrúar úr teyminu skulu fjalla um hvert mál ásamt formanni.

Sérfræðiteymi um beitingu nauðungar mun m.a. veita ráðgjöf til heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna um hvað teljist til nauðungar og um aðferðir til að komast hjá beitingu nauðungar. Þá er gert ráð fyrir að sérfræðiteymi um beitingu nauðungar hafi aðsetur hjá embætti landlæknis. Heilbrigðisstofnunum verði gert skylt að láta sérfræðiteyminu í té öll gögn máls, sem og þær upplýsingar og skýringar sem teymið telur nauðsynlegar vegna úrlausnar mála.

Í frumvarpinu er lagt til að ákvörðun yfirlæknis eða vakthafandi sérfræðilæknis um að víkja frá banni við beitingu nauðungar og/eða banni við fjarvöktun sæti kæru til sérfræðiteymis um beitingu nauðungar. Einnig er hægt að kæra beitingu nauðungar án þess að ákvörðun liggi til grundvallar. Þegar ákvörðun er kærð skal viðkomandi heilbrigðisstofnun senda öll gögn málsins til sérfræðiteymisins. Kæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar.

Sérfræðiteymið skal kveða upp úrskurð innan fjögurra virkra daga frá því að kæra barst, ella fellur hin kærða ákvörðun úr gildi. Sérfræðiteymið skal þó ávallt leitast við að kveða upp úrskurð eins fljótt og auðið er.

Í frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að bera úrskurð sérfræðiteymis undir héraðsdómara í þeirri þinghá þar sem viðkomandi sjúklingur á lögheimili og skal hann úrskurða í málinu innan viku frá því að kæra berst honum.

Úrskurðir héraðsdómara samkvæmt lögum þessum sæta kæru til Landsréttar. Um málskotið fer samkvæmt almennum reglum um meðferð einkamála með þeim frávikum sem greinir í lögum þessum. Aðrir úrskurðir Landsréttar en mælt er fyrir um í 1. mgr. 167. gr. laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, verða ekki kærðir til Hæstaréttar.

Málskot frestar ekki réttaráhrifum úrskurðar héraðsdómara samkvæmt lögum þessum, nema dómari mæli svo fyrir í úrskurði.

Ég ætla að láta hér staðar numið, virðulegi forseti. Ég hef farið yfir meginefni þessa frumvarps og leyfi mér að leggja til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. velferðarnefndar og til 2. umr.