152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:31]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég skildi nú ekki alveg formála ráðherra um samráð, en við erum að fjalla um alveg gríðarlega viðkvæmt mál. Við vorum fyrir nokkrum mínútum í umræðu um með hvers konar handvömm er hægt að klára mál um mjög mikilvæg réttindi eins og kosningamál. En hér erum við kannski að fjalla um það allra viðkvæmasta sem til er, þ.e. réttindi einstaklinga, frelsi þeirra og einhvers konar reisn. Þá þarf heldur betur að vanda sig. Í Fréttablaðinu í dag má lesa að formaður Geðhjálpar hafi rætt við ráðherra 22. desember þar sem ráðherra hafði lofað að fullt samráð yrði við sjúklinga og samtök sjúklinga um málið. Við það hefur ekki verið staðið, hvað vill ráðherra segja um það?