réttindi sjúklinga.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir andsvarið. Ég vil byrja á að taka undir það með honum að það er mikilvægt að vanda sig í þessu máli. Hv. þingmaður kom jafnframt inn á ósk formanns Geðhjálpar, þeirra ágætu félagasamtaka, um að þetta mál fari ekki hér fyrir Alþingi, um þetta samráð. Nú er þeim sem hér stendur ákveðinn vandi á höndum þar sem ég fæ þetta mál í miðri á og á erfitt með að fara með tímavélina til baka, í samráðið sem vísað er til að hefði átt að vera í aðdraganda og við vinnslu þessa frumvarps. Hins vegar er það rétt að ég hitti Geðhjálp á mjög góðum fundi sem fjallaði um fjölmörg önnur mál þann 22. og bað um að þetta mál færi ekki á dagskrá til að gefa okkur tækifæri til að funda með Geðhjálp sem við og gerðum. Ég gat því miður ekki setið þann fund en sá fundur fór fram með sérfræðingum ráðuneytisins 12. janúar, um þetta mál.