152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:34]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er algerlega ósammála hæstv. ráðherra um að hann þurfi að stíga upp í einhverja tímavél. Ef hann hefur orðið þess áskynja að fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafi ekki farið í nægilega gott samráð ber núverandi ráðherra að búa svo um hnútana að málið komi a.m.k. eins vel fyrir þingið af hans hendi og mögulegt er. Það liggur fyrir að þessi samtök eru ekki þau einu sem gera athugasemdir við frumvarpið og skort á samráði. Og hér nægir auðvitað ekki að tala bara við fulltrúa heilbrigðiskerfisins, það verður fyrst og fremst að tala við þá sem málið snertir. Og af því að hæstv. heilbrigðisráðherra viðurkenndi að það virtist eins og málið hafi farið vanbúið á sínum tíma inn á þingið spyr ég hæstv. ráðherra hvort hann íhugi ekki að fresta framlagningu málsins og taka þá nauðsynlegu umræðu sem hann þarf til að það komi fullbúið og gott inn.