152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:37]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég verð nú aðeins að fylgja eftir þessum spurningum um samráð út af því að mér þykja þetta alveg ferlega furðuleg svör hjá hæstv. ráðherra. Er það rétt skilið hjá mér að vegna þess að það var ekki haft samráð á fyrri stigum þá sé ekki hægt að hafa samráð núna við notendur? Það er aldrei of seint að hafa samráð, sérstaklega ekki í svona viðkvæmu og mikilvægu máli. Hér er opið bréf frá Geðhjálp til heilbrigðisráðherra og þar stendur, með leyfi forseta:

„Á fundinum þann 22. desember var ekki annað að skilja en að ráðherra virti sjónarmið Geðhjálpar og hygðist kalla haghafa til samráðs áður en frumvarpið yrði aftur lagt fram. Það vakti því undrun okkar og eru vonbrigði að frétta af frumvarpinu óbreyttu og án samráðs á dagskrá Alþingis miðvikudaginn 2. mars og nú aftur 14. mars.“

Mig langar til að spyrja ráðherra: Af hverju ekki bara hafa þetta samráð? Ég átta mig ekki alveg á þessu. Ég sit í velferðarnefnd. Ég mun agitera fyrir því í nefndinni að málið verði sent rakleiðis aftur til ráðherra til að fara í samráð. (Forseti hringir.) Það er ekki hægt að skila frá sér svona máli til þingsins. (Forseti hringir.) Ég myndi segja að málið (Forseti hringir.) sé illa unnið og það kemur til Alþingis án samráðs við notendur. Þetta er bara ekki hægt (Forseti hringir.) að bjóða okkur upp á svona vinnubrögð, ráðherra, viltu vinsamlegast taka það til baka.