152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:39]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir þessa ábendingu um að ekki hafi verið haft nægilegt samráð. Þeim sem hér stendur er ákveðinn vandi á höndum. Hér eru ábendingar umboðsmanns Alþingis sem hafa verið látnar bíða. Til að taka slíka ákvörðun þarf að taka þá ákvörðun á einhverjum málefnalegum forsendum um að það sé hægt að bæta málið verulega og mér finnst sanngjarnt og eðlilegt að hv. velferðarnefnd taki málið til umfjöllunar. (Gripið fram í: Þetta er stjórnarmál.) Já, já. Ég er að leggja það fram sem slíkt og ég trúi að það hafi verið vel unnið. Það hefur farið eina umferð í gegnum Alþingi. Það er alveg rétt sem fram hefur komið að ég er talsmaður þess að vinna með notendum (Forseti hringir.) þjónustu á öllum stigum. Mér finnst sanngjarnt og eðlilegt hér og nú (Forseti hringir.) að Alþingi fái þetta mál til umfjöllunar og geti þá skoðað það með þessum gleraugum.