152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:40]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég held að ég skilji loksins hvar hundurinn er grafinn í þessu máli. Eins og ég skil hæstv. ráðherra er það út af því að það er ekki hægt að bæta málið verulega. Það virðist vera niðurstaðan, að þrátt fyrir að hæstv. ráðherra telji að ef hann myndi hafa samráð við notendur þá kæmi í ljós að það væri ekki hægt að koma til móts við áhyggjur notenda í þessu máli. Hæstv. ráðherra má endilega leiðrétta mig ef ég er eitthvað að misskilja þetta. Þegar ráðherra talar um eða það sem ég heyri er að samráðið væri tímasóun út af því að hæstv. ráðherra getur ekki komið til móts við þær kröfur sem þarna koma fram í þessu máli. Það þykir mér miður að heyra. Mig langar til að spyrja ráðherra, út af því að það er skiljanlegt að í fjársveltu heilbrigðiskerfi á fjársveltum stofnunum þurfi að grípa til harkalegra úrræða, ofbeldisúrræða eins og að beita nauðung: Mun ráðherra beita sér fyrir því að þessu verði breytt? Að við sköpum og byggjum upp (Forseti hringir.) stofnanir og heilbrigðiskerfi þar sem ekki er þörf á því að beita þessum úrræðum? Það er það sem ég skil að notendur eru að kalla eftir.