152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:42]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Nú er það svo að við erum með ábendingar í skýrslu frá umboðsmanni Alþingis. Hér erum við með ábendingar frá nefnd Evrópuráðsins sem bendir á að það þurfi að vera lagastoð fyrir þeim aðferðum sem er beitt. Það kunna síðan að vera hugmyndafræðilegar skoðanir á því. Öll erum við á móti beitingu nauðungar. Það hlýtur bara að vera. Það er í algerum undantekningartilvikum sem þeim er beitt, við slíkar aðstæður, og því er lýst ágætlega í þessu frumvarpi á hvaða forsendum. Umboðsmaður Alþingis hefur bent á, miðað við vettvangseftirlit, að það sé ekki lagastoð fyrir þeim aðferðum sem beitt er. Það er það sem þetta fjallar um. (Gripið fram í: Þá þarf að beita öðrum aðferðum.) Alveg örugglega, hv. þingmaður.