réttindi sjúklinga.
Frú forseti. Af hverju er hæstv. ráðherra að leggja þetta fram, þennan óskapnað? Það er stórkostlegur misskilningur að umboðsmaður Alþingis hafi verið með ákall um að hæstv. heilbrigðisráðherra myndi snara fram lögfestingu á þvingun, nauðung og ýmiss konar harðræði, ónauðsynlegu harðræði gagnvart veiku fólki á lokuðum deildum. Það er alveg stórkostlegur misskilningur, frú forseti.
„Efni frumvarpsins snertir sjúklinga á heilbrigðisstofnunum ásamt aðstandendum þeirra. Enn fremur snertir efni frumvarpsins starfsfólk heilbrigðisstofnana. Mikið samráð var við Landspítala og embætti landlæknis.“
Ekkert samráð var haft við sjúklinga eða aðstandendur þeirra, ekki neitt. Og hæstv. heilbrigðisráðherra leyfir sér að koma hingað og láta eins og hann sé nauðbeygður til að taka ekkert tillit til ábendinga Evrópuráðsins og ábendinga umboðsmanns Alþingis sem segir mannréttindi notenda brotin daglega. (Forseti hringir.) Daglega. Umboðsmaður Alþingis var að benda á mannréttindabrot og þá á ekki að (Forseti hringir.) lögfesta það. Hvaða vitleysa er þetta? Þetta er alveg stórkostlegur misskilningur, frú forseti.