152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:50]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka spurningu hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Ég verð nú fyrst að bregðast við því að ef ég hef sagt hér að þetta væri frumvarp umboðsmann Alþingis þá held ég að ég hafi líka komið inn á það í ræðu minni og er meðvitaður um það að þetta er frumvarp hæstv. heilbrigðisráðherra sem er viðbrögð við skýrslu og OPCAT-eftirliti umboðsmanns Alþingis sem sinnir því eftirliti. Ég held ég hafi líka komið því að í framsöguræðu minni en biðst forláts á því, virðulegi forseti, ef ég hef sagt þetta svona, því að það er auðvitað ekki rétt. Ég les þetta bara með þessum gleraugum, þetta frumvarp, að hér sé verið að bregðast við þeirri ábendingu að það sé ekki lagastoð fyrir þeim aðferðum sem er beitt. Ég heyri hvað kemur fram hér í andsvörum og (Forseti hringir.) já, við erum meira að tala um, og þess vegna kom ég inn á það í minni ræðu, hugmyndafræði. Ég þekki vel til þeirrar hugmyndafræði að (Forseti hringir.) um leið og þú setur slík lög eða heimilar með einhverjum hætti við slíkar aðstæður að nauðung sé beitt þá leiði það (Forseti hringir.) til frekari nauðungar, eða ofbeldi leiðir af sér frekara ofbeldi ef þú skrifar það á þann stað einhvers staðar. En ég horfi á þetta frumvarp hér (Forseti hringir.) til að bæta þann aðbúnað og setja lagastoð undir þær aðferðir, faglegu aðferðir, sem þarf að beita í vissum tilvikum.