152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[18:54]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka seinni spurningu hv. þingmanns. Ég vil taka það fram að í skýrslu umboðsmanns Alþingis kemur jafnframt fram að ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað, þar hafi verið um fagleg vinnubrögð að ræða en það hafi skort lagastoð fyrir þeim vinnubrögðum. Á því verð ég að byggja svar mitt hér og engu öðru og ég geri alltaf ráð fyrir því að það sé faglega unnið á heilbrigðisstofnunum landsins. Hér erum við að fjalla hins vegar um mjög viðkvæm mál og fólk í mjög viðkvæmri stöðu og það er eðlilegt að spurt sé. En ég á ekki frekari svör við spurningu hv. þingmanns en þessi.