réttindi sjúklinga.
Frú forseti. Þetta er orðið gríðarlegt leiðinlegt mál. Setjum það í samhengi við það mál sem er á dagskránni núna, spurningu hv. þm Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um hvort það sé enn verið að stunda þessi lögbrot gagnvart sjúklingum, setjum það í samhengi við það að stjórnsýslan er enn að brjóta lög um afgreiðslu þingsins á ríkisborgararétti. Og þegar maður fær síðan framan í sig að kosningalög sem var verið að setja virka ekki heldur eins og þau ættu að gera og maður hefði haldið að Alþingi hefði sett á skýran hátt, þá veltir maður fyrir sér: Til hvers erum við hérna? Við setjum lög um hitt og þetta sem eru svo túlkuð eins og fólki hentar, (Forseti hringir.) framkvæmdarvaldið fer bara (Forseti hringir.) með mál eins og því sýnist. Sama hvað við gerum hérna, sama hvaða þingsályktanir við samþykkjum, sama hvaða lög við setjum þá er bara sagt: Æ, (Forseti hringir.) það er svo óheppilegt, gerum þetta einhvern veginn öðruvísi. Fáránlegt.