réttindi sjúklinga.
Frú forseti. Ég verð bara að segja að ég er sjokkeraður að lesa það að fyrir fjórum árum síðan hafi verið bent á það að hér á landi væri verið með inngrip sem brytu í bága við stjórnarskrá og mannréttindasáttmála og ríkið gerði ekkert í því. Í fyrra voru brotin mannréttindi á útlendingum sem höfðu sótt hér um hæli og ríkið vildi ekkert gera í því. Nú er verið að brjóta lög varðandi upplýsingagjöf til Alþingis og ríkið vill ekkert gera í því. Er bara allt í lagi að brjóta lög á fólki? Erum við að leyfa það bara af því að það eru útlendingar eða fólk með geðfötlun? Er þá bara hægt að ýta öllu til hliðar? Ég segi nei við því. Ég hélt að ég (Forseti hringir.) byggi í samfélagi þar sem við hugsuðum um minni máttar en færum ekki illa með þá og framkvæmdarvaldið (Forseti hringir.) væri ekki að brjóta lög.