réttindi sjúklinga.
Forseti. Málið sem við erum með dagskrá er dálítið alvarlegt í ljósi orða hæstv. ráðherra í andsvari við hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur þar sem ráðherra segir að það hafi komið fram í skýrslu umboðsmanns Alþingis að ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað og um fagleg vinnubrögð hafi verið að ræða en skort hafi lagastoð fyrir þeim vinnubrögðum. Hann verði því að byggja svar sitt hér á engu öðru og gerir ráð fyrir að það hafi verið unnið faglega á heilbrigðisstofnunum landsins. Ég skil þetta sem svo að umboðsmaður Alþingis hafi komið hérna fyrir um þremur árum síðan og sagt að það væri verið að fremja mannréttindabrot á fólki á heilbrigðisstofnunum og það séu bara kölluð fagleg vinnubrögð með enga lagastoð. Ég sé ekkert í svari ráðherra um að því hafi verið hætt síðan þá. Ég spyr mig: Í vinnslu þessa máls, ef það kom ábending um að það væri verið að fremja mannréttindabrot á fólki þá hljótum við að hafa hætt því (Forseti hringir.) og hvers vegna þá að leita eftir lagastoð til að fara að gera það aftur? En nei, það er greinilega enn þá verið að þessu og þar af leiðandi þarf að ná í lagastoð (Forseti hringir.) fyrir því til að halda þeim brotum áfram. Í hvers konar raunveruleika erum við hérna?