réttindi sjúklinga.
Frú forseti. Ég get alveg lofað öllum þingmönnum og öllum hæstv. ráðherrum að ég er komin með alveg jafn mikinn leiða á þessari umræðu og þið. Nú er ég hins vegar búin að koma margoft upp og óska eftir upplýsingum um það hvað hefur farið á milli forseta þingsins og ríkisstjórnarinnar til að reyna að finna einhverjar sættir í þessu máli. Ég hef gengið svo langt að senda skriflega fyrirspurn og óska eftir upplýsingum um þetta. Þeirri fyrirspurn hefur verið hafnað þar sem hún varðaði ekki stjórnsýslu þingsins. Þetta er allt mjög snúið. Það eina sem hægt er að gera til að krefjist þess að þinginu verði sýnd sú virðing sem það á skilið, að lögum verði fylgt þegar það er skýrt að það er ekki verið að fylgja þeim, er að koma hingað upp í pontu aftur og aftur og hamra á því að svona eigi þetta ekki að vera, þetta eigi ekki að líðast. Það á ekki að líðast að við séum búin að setja lög, það séu lög í gildi sem stjórnvöld sinna bara eftir hentisemi.
Ég ítreka spurningu mína til forseta: Hvaða samskipti hafa átt sér stað, hver er útkoman úr þeim? Hvenær getum við hætt að tala um þetta?