réttindi sjúklinga.
Virðulegi forseti. Við höfum verið að ræða hér grundvallarmál sem varðar mannréttindi fólks. Einhverra hluta vegna hafa bara verið tveir, í mesta lagi þrír, stjórnarliðar í salnum. Núna er aðeins einn, hæstv. heilbrigðisráðherra — og nr. 2. Ég vil freista þess að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort honum hugnist þessi vinnubrögð gagnvart Alþingi sem viðhöfð hafa verið þegar kemur að veitingu íslensks ríkisborgararéttar. Ég er alveg handviss um að hæstv. heilbrigðisráðherra er mannvinur. Hann vill vel og ég hef alltaf upplifað hann sem málefnalegan stjórnmálamann. Ég held að það væri dýrmætt fyrir okkur að vita hvað honum finnst um þessi vinnubrögð gagnvart Alþingi og hvort hann geti jafnvel hugsað sér að beita sér með einhverjum hætti fyrir því að Alþingi geti að þessu leyti, þegar kemur að veitingu ríkisborgararéttar, sinnt þessu lögbundna hlutverki sínu.