152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[19:19]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir ræðuna. Ég vil bara hnykkja á því hér, í ljósi inntaks ræðu hv. þingmanns, að ég er alla daga á þeirri skoðun að þingið eigi að fá að fjalla um mál. Ég væri ekki að koma með þetta mál hér ef ég teldi ekki að það hefði verið vandað til þess þó að ég geti alveg samsinnt því að það hefðu fleiri mátt koma að undirbúningi frumvarpsgerðarinnar sjálfrar, að það hefði ekki bara verið eftirlátið samráði. Ég vil hins vegar ítreka það sem ég sagði í fyrri ræðu að það er sérstaklega tekið fram í skýrslu umboðsmanns að það verði ekki séð af þessu vettvangseftirliti að fullnægjandi lagagrundvöllur sé til staðar en á móti er jafnframt sagt að það hafi ekki verið að sjá að sjúklingar þar séu beittir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þetta finnst mér mikilvægt, virðulegur forseti. Þar kemur m.a. fram að það virðist eftir fremsta megni verið reynt að takmarka slíkar aðgerðir bæði að umfangi og tíma. Ég er alveg sannfærður um það að fagleg vinnubrögð eru ávallt höfð að leiðarljósi í heilbrigðisstofnunum okkar. Það var svo metið að það þyrfti að bregðast skjótt við — ég vísaði hér í þrjú ár — og hvaða vettvangur er betri til þess en akkúrat þingið og hv. velferðarnefnd til að meta það hvaða málefnalegu rök geti leitt til þess að bætt verði úr þessu frumvarpi? (Forseti hringir.) Ef við erum að tala um að fara með frumvarpið í annað ferli, meta það í samhengi annarra laga, þá erum við bara að taka það í allt annað ferli. Þá vil ég bara fá fram rökin fyrir því. (Forseti hringir.) Það er enginn vettvangur betri en einmitt þingið.