réttindi sjúklinga.
Herra forseti. Mér finnst hæstv. ráðherra vera nokkuð sannfærðari núna um að málið sé gott en hann var í andsvörum áðan eftir framsöguna. Ég skildi hæstv. ráðherra ágætlega, að hann vildi að þingið fengi að fjalla um málið og þó það nú væri, þingið á að fjalla um málið. En hann sagði líka núna og staðfesti það sem hann sagði áðan að honum fyndist ekki nógu margir hafa fengið að koma að undirbúningi málsins. Og hér erum við ekki að tala um skort á hverju sem er við undirbúning málsins. Hér erum við að tala um fólkið sem málið varðar. Við erum að tala um sjúklingana. Við erum að tala um hagsmunagæsluaðila, sjúklingana og í ljósi þess finnst mér málið bara einfaldlega ekki nógu vel undirbúið, sérstaklega þegar þau ganga svona hart fram núna og gagnrýna málsmeðferðina. Mér finnst nú bara, á þessum hálftíma sem liðinn er frá því að mælt var fyrir málinu, ráðherra slá dálítið í og úr með það hvort honum finnist málið sem hann sjálfur er að leggja fram vera gott eða ekki. (Gripið fram í.) Það er út af fyrir sig bara næg ástæða til að hinkra við.