réttindi sjúklinga.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ætla að freista þess sjálf að vera sammála því að trúa því að að baki þessu frumvarpi séu góðar fyrirætlanir eingöngu. Ég tel hins vegar ljóst af bæði frumvarpinu og þeim umræðum sem hafa átt sér stað hér að þetta er úrelt hugsun. Það er úrelt hugsun að baki þessu frumvarpi og það er eitthvað sem hefði kannski mátt koma í veg fyrir með nánara samráði við þá aðila sem hafa verið að gagnrýna þetta einna mest, hafa verið að benda á þær nýju leiðir sem eru til til þess að leysa þessi mál. Ég hjó eftir því í ræðu hæstv. ráðherra áðan að hann nefndi Evrópuráðið og ábendingar sem þaðan komu. Þá langar mig bara að vekja athygli á, og ég mun fara nánar út í það í ræðu minni undir þessu máli, að þing Evrópuráðsins ályktaði fyrir mörgum árum að ríki ættu að stefna að því að afnema algerlega þvingun í geðheilbrigðisþjónustu. Og hvað erum við að gera? Við erum að útvíkka hana. Við erum að útvíkka hana enn frekar.