réttindi sjúklinga.
Herra forseti. Já, enda eru Landssamtökin Þroskahjálp gagnrýnin á þetta frumvarp einmitt út frá því að það hafi ekki verið litið til ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þrátt fyrir að stjórnvöld hafi fullgilt og skuldbundið sig til að virða og framfylgja þeim samningi. Það er heldur ekki gengið nægilega vel úr skugga um að frumvarpið sé í samræmi við réttindi fatlaðs fólks, þannig að það ber allt að einum brunni. Það er algjör skortur á samráði við stóran hluta af þeim hópi fólks sem mun í rauninni fyrst og fremst verða fyrir einhverju, ákvörðunum sem eiga náttúrlega helst ekki að orka tvímælis en gera það í dag og við þurfum auðvitað að leita allra leiða til þess að þetta verði í lagi.