152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[19:39]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég sit í velferðarnefnd sem mun fá þetta frumvarp til meðferðar og er ánægð með að greinargerðin er nokkuð ítarleg um forsögu málsins og ástæður þess að þetta frumvarp er hingað komið. Þar er t.d. rakið að það sé, eins og við vitum sem höfum hlustað á umræðuna hér í dag, nauðsynlegt að skapa skýran lagaramma um það verklag sem er viðhaft nú þegar á heilbrigðisstofnunum hér á landi, lagaramma um þvinganir, um valdbeitingu, annars konar inngrip í sjálfsákvörðunarréttinn, inngrip í frelsi og friðhelgi einkalífs sjúklinga. Ég er sammála því sem fram hefur komið í umræðunni, m.a. hjá hv. þm. Loga Einarssyni, að málið sjálft og þeir hagsmunir sem liggja hér að baki eru þess eðlis að það á að leggja metnað í það og sýna frumkvæði um það og það á að sýna þá auðmýkt í ljósi eðlis málsins að samráð við smíði þess á að vera og hefði átt að vera raunverulegt og efnislegt samráð og samtal.

Ég hlustaði á framsöguræðu hæstv. heilbrigðisráðherra þar sem hann opnaði á þessu atriði enda hefur komið fram gagnrýni um þetta atriði í fjölmiðlum í dag. Enda þótt ég skilji að það er auðvitað afar brýnt að bregðast vel við og efnislega og hratt í ljósi þess að nokkuð er um liðið síðan umboðsmaður Alþingis gerði mjög alvarlegar athugasemdir, eins og er rakið m.a. í greinargerðinni, hefði samt sem áður og kannski ekki síst vegna inntaks athugasemdanna einmitt átt að gefa samráðinu raunverulegan gaum. Ég átta mig líka á því að hæstv. heilbrigðisráðherra var ekki sá ráðherra sem fyrstur kom með málið en í ljósi þess tíma sem liðinn er síðan þá hefði mátt staldra við. Þessar athugasemdir og þessi gagnrýni er ekki ný af nálinni. Ég held að með allar svona aðgerðir, það leiðir af eðli máls og ekki ætla ég að þykjast hafa innsýn eða skilningi á því við hvaða aðstæður þarf að beita þvingunum, en það er gert og gert eftir mat lækna og það blasir við að þegar þeim er beitt er það nánast alltaf í óþökk þess sem fyrir því verður. Maður sér það þegar maður skoðar umsagnirnar um frumvarpið að þeir sem gagnrýna samráðsleysið, þau samtök og þeir aðilar, viðurkenna þörfina á lagasetningu. Þess vegna finnst mér svo grátlegt að það hafi ekki verið settur metnaður í að leyfa þessu samráði að eiga sér stað. Með vísan í eðli málsins og þá viðkvæmu hagsmuni sem þarna eru að baki finnst mér algjörlega ótækt að málið hafi verið unnið með þeim hætti sem hæstv. heilbrigðisráðherra er hér að lýsa.

Við þekkjum tilefnið, við þekkjum ástæðurnar, við vitum að tilefnið eru alvarlegar athugasemdir í skýrslu umboðsmanns Alþingis um eftirlitsheimsókn hans, að eigin frumkvæði að mér skilst, á lokaðar deildir geðsviðs Landspítalans á Kleppi, réttargeðdeild, öryggisgeðdeild og sérhæfða endurhæfingardeild. Þessi heimsókn var árið 2018. Vissulega er brýnt að bregðast við þannig að íslensk lagaumgjörð sé að þessu leyti skýr og geti þjónað tilgangi sínum. Til þess að hún geti það þarf hún að vinnast í sátt og þannig að löggjöfin sjálf sé ekki í anda þeirra aðgerða sem hér er verið að tala um sem eru þvingandi í eðli sínu. Það er talað um það í skýrslu umboðsmanns Alþingis að það skorti verulega á fullnægjandi heimildir og að það skorti verulega á umbúnað í gildandi lögum vegna þessara inngripa sem nauðsynlegt er að séu fyrir hendi. Ég segi þetta með þeim fyrirvara að við þekkjum það með inntak þeirra aðgerða sem þarna eru undir. Þess vegna held ég að það sé eitt atriði að tryggja lagastoðina og að lagaumgjörðin sé skýr en það þurfi líka, og ég tek eftir því að það er það sem Geðhjálp nefnir fyrst og fremst, þ.e. samráðsleysið. Að það hafi ekki, þrátt fyrir að það hafi verið kallað eftir því ítrekað opinberlega og allir sem hafa fylgst með umræðunni hafa séð það og það hefur komið fram oftar en einu sinni, oftar en tvisvar og allan þennan tíma sem þetta mál hefur legið uppi í ráðuneyti hefur það legið algjörlega ljóst fyrir af hálfu Geðhjálpar að sú var einlæg óskin að samráð fengi að eiga sér stað.

Það er líka gagnrýni á það á hvaða hugmyndafræði löggjöfin byggir og nefnt, sem er borðleggjandi, að lagasetning á hverjum tíma spegli ákveðna hugmyndafræði um meðferð og nefnt t.d. að bygging meðferðarkjarna geðsviðs sé ekki nærri. Mér finnst það svo grátlegt í ljósi inntaks alvarlegra athugasemda þeirra að frumvarpið sé unnið með þeim hætti sem blasir við og öskrar á mann og við sáum síðast í fjölmiðlum í dag að eru gerðar alvarlegar athugasemdir við.

Það er þannig af hálfu Geðhjálpar, af hálfu Landspítala, af hálfu landlæknis, af hálfu Þroskahjálpar að öll þessi samtök og allir þessir aðilar virðast vera sammála um að það sé jákvætt, það sé eðlilegt og nauðsynlegt að endurskoða lögin að þessu leyti. Geðhjálp nefnir að þarna sé sitthvað til bóta en upplifir þetta nánast, skiljanlega vil ég segja, sem þvingandi aðgerðir hvernig þessi lagasetning á að fæðast.

Ég ætlaði í sjálfu sér ekki að hafa þetta mjög langt en nefni þó að mér fannst athyglisvert líka, af því að hér hefur svolítið verið rætt um umsögn og sjónarmið Geðhjálpar, að við sjáum einnig athugasemdir af hálfu Þroskahjálpar varðandi réttindi fatlaðs fólks. Í því samhengi leyfi ég mér að nefna að minn flokkur, sá flokkur sem ég tilheyri, hefur talað fyrir því til lengri tíma að það eigi að lögfesta samninginn um réttindi fatlaðs fólks. Það hefði verið áhugavert að sjá hvaða áhrif það hefði getað haft á innihald þessa frumvarps ef við værum búin að festa í sessi, festa í íslenska lagasetningu þau ákvæði sem er að finna í samningnum og hvort það hefði haft áhrif á inntak þessa frumvarps. Það er óþægilegt til þess að vita að við getum ekki verið viss um hver áhrifin væru á einstakar greinar þessa frumvarps.

Í umsögn Þroskahjálpar fara samtökin þá leið að biðla til velferðarnefndar að gæta að því í vinnu nefndarinnar. Eitt er að tala um þinglega meðferð og að þingið eigi að fá að vinna þetta mál, þar erum við dálítið að ræða hinn augljósa hlut, það gerir þingið alltaf. Að leggja það á borðið sem eitthvert framlag til vandaðrar vinnu er sérstök nálgun af því að þetta er hin hefðbundna meðferð mála alltaf og engin afsökun fyrir því að þrátt fyrir að það hafi legið fyrir og að nýr hæstv. heilbrigðisráðherra hafi meira að segja sjálfur átt fund með Geðhjálp um það með hvaða hætti ætti að vinna þetta frumvarp og hvernig ætti að leggja það fram, að aðkoma þingsins að málinu núna breytir því ekki hver forsagan er og með hvaða hætti hæstv. ráðherra kynnir málið til leiks í þingsal. Við sjáum það í greinargerðinni og málinu öllu að samráð er haft við Landspítala og við landlækni. Það er haft samráð við dómsmálaráðuneyti og félagsmálaráðuneyti, gott og vel, en hvergi við hóp sjúklinga og aðstandenda þeirra. Það held ég að sé kjarnaatriðið í þessu.

Ég vil leyfa mér strax við 1. umr. að nefna þetta atriði um réttindi fatlaðs fólks. Mér finnst áhyggjuefni að sjá tóninn í umsögn Þroskahjálpar hvað það varðar að það virðist vera sem ekki hafi ekki verið hugsað til hagsmuna og sjónarmiða fatlaðra að þessu leyti, að horfa til inntaks samningsins. Ég hefði áhuga á að heyra sérstaklega frá hæstv. heilbrigðisráðherra hvað það varðar og hvaða augum hann lítur þá umsögn sem liggur fyrir og hvort það sé ástæða til að rýna frumvarpið sérstaklega hvað þau sjónarmið varðar.