152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

heimsókn forseta norska Stórþingsins.

[13:30]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti norska Stórþingsins, Masud Gharahkhani, er staddur á þingpöllum. Með honum í för eru m.a. þingmennirnir Morten Wold og Kathy Lie. Forseti norska Stórþingsins er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands, í boði forseta Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta norska Stórþingsins, Masud Gharahkhani og sendinefnd velkomin í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli ríkjanna. Alþingi vottar forseta norska Stórþingsins og norsku þjóðinni vináttu og virðingu og ég vil biðja hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum.

[Þingmenn risu úr sætum.]