152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Ágústa Ágústsdóttir (M):

Herra forseti. Einu sinni var ég lítil en er árunum fjölgaði vakti það æ oftar furðu mína hví sitjandi ríkisstjórnir hefðu aldrei lagt áherslu á plan B fyrir íslenska þjóð á virkri eldfjallaeyju í Norður-Atlantshafi, hvort sem um ræðir út frá náttúruhamförum eða stríðsástandi; eyju stútfullri af náttúruauðlindum jafnt á landi sem í sjó. Í dag eru orkuskiptin fremst á oddinum þar sem rafmagnsbílar og vindmyllur eru tignuð sem hið eina sem bjargað geti okkur frá glötun. Lífsnauðsynlegt er að nýta okkar innlendu orku til þess að við getum orðið eins sjálfbær og mögulegt er. Það á að vera skylda hverrar þjóðar.

Það ber hins vegar vott um fátæka og þröngsýna hugsun þegar setja á öll eggin í sömu körfuna. Samkvæmt mati Alþjóðaorkustofnunarinnar mun eftirspurnin eftir fágætum jarðmálmum fjórfaldast á heimsvísu fyrir árið 2040. Enginn iðnaður er jafn mengandi fyrir umhverfið eins og námuiðnaður. Þá má benda hv. þingmönnum á að á heimsvísu í dag eru í kringum 32.000 eitruð risastöðuvötn eða lón, sem er afleiðing þess sem við m.a. köllum græn orkuskipti. Vegna eftirspurnar munu námur heimsins aldrei ná að fóðra slíkar kröfur og því eru fyrirtæki eins og t.d. Deep Green og UK Seabed Resources löngu byrjuð að kanna möguleikann á að hagnýta sjávarbotninn til námuvinnslu.

Það er kaldhæðni að hugsa til þess að á COP26 ráðstefnunni í Glasgow skrifuðu um 100 þjóðir undir samning þar sem vinna á gegn eyðingu regnskóganna. En á sama tíma eru þessar sömu þjóðir í raun að vinna að eyðingu þeirra vegna orkuskiptanna. Við ríka þjóðin í norðri erum virkir þátttakendur í eyðingu landa og ógn við líf fólks í suðri til þess eins að geta aðlað okkur sem hina hvítu riddara grænu orkubyltingarinnar eins og um sérstaka ólympíugrein sé að ræða. Þar ríður yfirborðskenndin um á kostnað innviðanna sjálfra hjá þeim sem stjórna.

Orkuskiptin munu aldrei leysa loftslagsvanda heimsins. Þau munu hins vegar gera okkur mun háðari löndum eins og Kína sem ræður á einn eða annan hátt yfir um 80% allrar námuvinnslu heims á fágætum jarðmálmum. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin er fátæk og skyni skroppin, og skortir skynsemi.