störf þingsins.
Virðulegi forseti. Undanfarið hefur nokkuð borið á því í umræðunni að hér sé allt á vonarvöl í efnahagsmálum. Vaxtabreytingar Seðlabanka Íslands vegna Covid, verðbólga og óstöðugleiki, svo að ekki sé minnst á aðgerðaleysi stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa af stríði rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Það er nú samt þannig eftir efnahagshremmingarnar sem á okkur hafa dunið og fylgdu heimsfaraldrinum að staða heimilanna er góð þegar litið er til skulda við lánastofnanir þótt vissulega þurfi að huga að ójafnri stöðu fólks í því tilliti. Þar er róður þeirra sem t.d. eiga ekki eigið húsnæði þyngstur og algjörlega ljóst að setja þarf þarfir þeirra í húsnæðismálum í forgrunn eins og forsætisráðherra hefur ítrekað sagt. Staða húseigenda er þó heilt yfir betri nú en hún var fyrir bæði fimm, sjö og tíu árum samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands.
Þá er það fagnaðarefni að atvinnuleysi fer ört minnkandi og grunnatvinnuvegir eins og ferðaþjónustan eru hægt og sígandi á góðri leið með að endurheimta fyrri styrk. Til marks um það er aukin innlend kortavelta, ríflega 17% á milli ára miðað við breytilegt verðlag, og aukinn straumur ferðamanna með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á verslun og viðskipti innan lands.
Ráðherraráð um ríkisfjármál fylgist að sjálfsögðu grannt með þróun mála. Ef grípa þarf til aðgerða vegna verðbólguþrýstings eða vöruverðshækkana munum við nálgast það, eins og við höfum nálgast aðrar áskoranir undanfarin ár, með það í huga að slíkar aðgerðir skili sér fyrst og fremst til þeirra sem minnst hafa á milli handanna. Það er mikilvægt að ríkisstuðningur rati á rétta staði, ekki endilega upp allan tekjustigann. Ekki er síður mikilvægt að þær aðgerðir sem gripið er til hverju sinni styðji við önnur markmið ríkisstjórnarinnar. Í þessu tilliti má nefna flata lækkun á vörur eins og eldsneyti sem styður t.d. ekki við loftslagsmarkmið stjórnvalda og nær í ríkari mæli til þeirra sem eru í efri lögum tekjustigans.
Nei, forseti. Það er mikilvægt að aðgerðir séu á félagslegum forsendum og nái til fólks þar sem þær skipta virkilega máli. Bölsýni og barlómur er jafn samofin efnahagsumræðunni (Forseti hringir.) og sú staðreynd að við virðumst nú þrátt fyrir allt alltaf lenda á fótunum.