störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er mikill heiður að fá að halda jómfrúrræðu mína hér á Alþingi í dag. Það má með sanni segja að staðan í heimsmálunum sé viðsjárverð. Vegna hernaðar Rússlands gegn Úkraínu hefur Atlantshafsbandalagið gert viðeigandi ráðstafanir, viðbragðshraði hefur verið aukinn og varnarviðbúnaður styrktur. Sú staða sem upp er komin mun líklega hafa í för með sér aukin umsvif bandalagsins hér á landi. Það er mikilvægt að við Íslendingar uppfyllum skuldbindingar okkar gagnvart bandalaginu í samræmi við þjóðaröryggisstefnu landsins og að við treystum varnir Íslands. Lengi hefur verið til umræðu að flytja skipastól Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja en í ljósi hlutverks Gæslunnar tel ég mikilvægt að ganga lengra og flytja starfsemi Gæslunnar þangað í heild. Unnið er að breytingum í Njarðvíkurhöfn sem munu bæta aðstöðu til muna og tryggja varanlega aðstöðu. Frá Reykjanesbæ er stutt á aðalstarfssvæði Gæslunnar. Flugvöllurinn er opinn allan sólarhringinn og möguleikar á uppbyggingu eru augljósir. Alþjóðlegar æfingar sem farið hafa fram á svæðinu hafa sýnt að aðstaðan á öryggissvæðinu gegnir lykilhlutverki, hvort sem litið er til staðsetningar, starfsfólks í þjónustu, aðgengi að eldsneyti eða tækniaðstöðu. Mikilvægt er að horfa til framtíðarþarfar Gæslunnar og taka tillit til aukningar á umfangi, bæði varðandi leit og björgun en ekki síst út frá öryggis- og varnarhagsmunum.
Virðulegur forseti. Með flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar myndi ríkið sýna stuðning sinn við uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum í verki auk þess að efla Landhelgisgæsluna til hagsbóta fyrir sjófarendur, sjúklinga og alla landsmenn. Nauðsynlegt er að tryggja öflugt viðbragð og með samþættingu sem þessari tel ég að því verði náð. Ég hvet hæstv. dómsmálaráðherra til að taka ákvörðun um að flytja stofnunina til Suðurnesja og setja undirbúning þess í algeran forgang í góðu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk Landhelgisgæslunnar, flaggskips okkar í öryggis- og varnarmálum.