152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það sem mig langar að gera að umtalsefni mínu hér í dag er sú alvarlega staða sem víða er uppi er kemur að byggðaþróun og stöðu mismunandi svæða og sveitarfélaga hvað varðar samkeppnishæfni og stöðu samanborið við önnur svæði og önnur sveitarfélög. Það er mál sem við megum ekki missa sjónar á í störfum okkar hér á Alþingi Íslendinga. Það svæði sem mig langar sérstaklega að ræða hér í dag er hluti af Norðvesturkjördæmi eða svæði sem nær yfir Dali, Strandir og Húnavatnssýslur. Þetta svæði á það sameiginlegt að vera háð landbúnaði enda er um eitt stærsta landbúnaðarsvæði landsins að ræða. Við höfum hér á Alþingi rætt stöðu landbúnaðar á Íslandi og þá grafalvarlegu stöðu sem þar er uppi og sér í lagi í sauðfjárrækt en stór hluti býla á því svæði sem hér um ræðir eru sauðfjárbýli. Það er því ljóst að sú þróun sem við erum að sjá teiknast upp fyrir framan okkur er kemur að hækkun á aðföngum, svo sem áburði, mun hafa verulega íþyngjandi áhrif fyrir þetta svæði. Íbúaþróun á svæðinu hefur verið undir landsmeðaltali undanfarin ár og þó svo að fjölgað hafi þar á síðustu árum er sú fjölgun ekki í neinum takti við þá fjölgun sem verið hefur annars staðar. Alls fluttu tæplega 100 manns af svæðinu umfram aðflutta á árunum 2012–2019. Það er ríflega 1% af íbúum svæðisins. Hagvöxtur er einnig undir landsmeðaltali og má þar nefna að hagvöxtur á Norðurlandi vestra var að jafnaði tæp 2,5% á sama tímabili, en það er um 2% undir hagvexti í öðrum landshlutum.

Það er ljóst að aðgerða er þörf fyrir þetta svæði ef við eigum að geta snúið frá þeirri þróun sem lýst er hér að ofan. Það er nauðsynlegt að mínu mati að stjórnvöld komi að þessu verkefni áður en það verður hreinlega of seint, með sértækum aðgerðum í byggðamálum þar sem ríki og sveitarfélög á svæðinu fari í samstilltar aðgerðir til að efla byggð (Forseti hringir.) og atvinnu á svæðinu. Það er mikilvægt (Forseti hringir.) að byggð sé á landinu öllu og trygg byggð um allt land.