152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

störf þingsins.

[14:05]
Horfa

Friðjón R. Friðjónsson (S):

Virðulegur forseti. Fyrir nokkrum dögum var hér hressileg umræða um húsnæðismál og höfuðborgarsvæðið, áhugaverð að mörgu leyti. Til hennar var blásið af þingmönnum Samfylkingarinnar. Þau komu hér hvert á fætur öðru og töluðu um tölur og um lóðir til vitnis um að allt væri í himnalagi í höfuðborginni. Staðreyndin er hins vegar sú að Reykjavík dregst aftur úr hvað varðar íbúafjölda ár eftir ár. Eitt sinn voru Reykvíkingar 40% þjóðarinnar en eftir nokkurra ára valdatíð R-listans byrjaði hlutfallið að lækka og hefur haldið áfram að lækka ár eftir ár.

Í síðustu viku taldi hv. þm. Kristrún Frostadóttir að Reykvíkingar væru ekki nema rétt rúmlega þriðjungur þjóðarinnar. Staðreyndin er sú að síðustu 20 ár hefur landsmönnum fjölgað um 30%, en Reykvíkingum bara um 19%. Á sama tíma hefur Kópavogsbúum fjölgað um rúm 60%, Garðbæingum um 80% og Hafnfirðingum um 50%. Mosfellsbær hefur tvöfaldast í íbúafjölda, 100% fjölgun. Reykjanesbær og Árborg hafa vaxið um 80% hvort og Hveragerði um 50%, Akranes og Ölfus um 40%. Alls staðar í kringum höfuðborgina hefur íbúum fjölgað umfram landsmeðaltal. Alls staðar nýta sveitarfélögin tækifæri til að uppfylla óskir um ódýrar íbúðir og sérbýli, um að eiga garð og yrkja hann, öfugt við það sem gerist í Reykjavík þar sem íbúar Vogabyggðar voru skyldaðir til að rækta berjarunna þvert gegn vilja sínum.

Við kunnum hv. þingmönnum Kristrúnu Frostadóttur og Jóhanni Páli Jóhannssyni, krónprinsessunni og jókernum í spilastokki Samfylkingarinnar, þakkir fyrir að draga athygli þingsins að hnignandi stöðu höfuðborgarinnar. Það mun nýtast í samtalinu um framtíð Reykjavíkur sem fram fer á næstu vikum.

(Forseti (BÁ): Forseti áminnir þingmenn að gæta orða sinna þegar vikið er að öðrum hv. þingmönnum.)