störf þingsins.
Herra forseti. Þessa dagana berast okkur fréttir af stríði austast í Evrópu. Þá reikar hugurinn til þess kerfis sem við höfum til að taka á brotum sem eiga sér stað við þær aðstæður. Það er eitthvað sem við erum alltaf að þróa og móta og reyna að gera betur. Eitt af því sem var komið á laggirnar er Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag en þangað er hægt að vísa brotum; glæpum sem taldir eru ógna friði, öryggi og velferð í heiminum. Þetta eru stærstu glæpirnir; hópmorð, glæpir gegn mannúð, stríðsglæpir og glæpir gegn friði. Það hefur lengi verið kallað eftir því að víkka út umboð dómstólsins þannig að glæpurinn vistmorð verði viðurkenndur sem eitt af þeim brotum sem hægt er að leita til dómstólsins með.
Spurningin er nefnilega: Til hvaða ráða getur almenningur gripið þegar ákall um aðgerðir strax skilar engum viðbrögðum frá stjórnvöldum? Hver á að verja móður jörð fyrir óheftri græðgi stórfyrirtækja sem vilja gjörnýta auðlindir og önnur náttúrugæði? Það þarf að tryggja fólki sem tekur að sér að berjast fyrir þessum sameiginlegu hagsmunum okkar allra möguleika til að leita til dómstóla með þau efni.
Á sunnudaginn kemur er evrópskur dagur fyrir viðurkenningu á vistmorði. Við í þingflokki Pírata munum gera tvennt til að minnast þess dags. Við munum halda málþing á Kjarvalsstöðum, reyndar daginn eftir, í hádeginu á mánudaginn í næstu viku, þar sem við fáum erlenda sérfræðinga (Forseti hringir.) til að fara yfir þessi mál með okkur, (Forseti hringir.) og við munum leggja fram þingsályktunartillögu um að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir viðurkenningu á vistmorði. Ég hvet alla þingmenn til að líta í pósthólfin sín (Forseti hringir.) og sjá þá tillögu og gerast meðflutningsmenn.