störf þingsins.
Virðulegi forseti. Lífeyrir almannatrygginga er skertur um 45% af þeim lífeyristekjum sem eldri borgarar hafa fram yfir 25.000 kr. á mánuði. Auk þess er lagður skattur á þessar tekjur þannig að heildarskerðingar geta verið rúm 70%. Lífeyrissjóðirnir eru í eigu þeirra sem greiddu í þá, ekki í eigu ríkisins og alls ekki í eigu atvinnurekenda. Í öllum samningaviðræðum um launakjör sem ég hef tekið þátt í var alltaf litið á greiðslur atvinnurekanda sem laun. Sé lífeyrir frá almannatryggingum og greiðslur úr almennu lífeyrissjóðunum lagðar saman ná þær sjaldnast meira en 300.000 kr. á mánuði. Þegar ljóst var að engar leiðréttingar voru í grimmilegum skerðingum ellilífeyris í lögunum sem sett voru árið 2017 ákvað grái herinn að fara í mál við Tryggingastofnun ríkisins og íslenska ríkið sem byggði m.a. á mannréttindaákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar. Málið tapaðist fyrir héraðsdómi 22. desember síðastliðinn. Óskaði þá grái herinn eftir því að áfrýja beint til Hæstaréttar. Hæstiréttur varð við þeirri ósk vegna mikilvægis málsins og mælti með því að málið fengi skjóta lausn. Ef málið tapast þar munum við senda málið til Mannréttindadómstóls Evrópu því að baráttunni er ekki lokið.