152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

störf þingsins.

[14:13]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Nýlega var ég að fá svar ráðherra um ólögmætar búsetuskerðingar í ellilífeyriskerfinu og örorkukerfinu, almannatryggingum. Niðurstaða umboðsmanns var að ekki væri skýr lagastoð fyrir því að reikna framtíðartímabil örorkulífeyris í sama hlutfalli og örorkulífeyri þegar lífeyrisþegar nytu ekki sambærilegra greiðslna frá öðru EES-ríki. Þetta mál fór fyrir dómstóla að hluta 2016, fyrir nær átta árum. Ríkið skíttapaði málinu í héraðsdómi. Hvað gerði ríkið þá? Sætti það sig við niðurstöðuna? Nei, það áfrýjaði til Landsréttar. Þar tapaðist málið 2020. Sættir ríkið sig við þá niðurstöðu? Nei. Ríkið áfrýjaði til Hæstaréttar. En um hvað erum við að tala? Jú, við erum að tala um þá jaðarsettustu í íslensku samfélagi, þá sem ég kalla óvini ríkisstjórnarinnar númer eitt, fólk sem fær 10% minna en lægsti lífeyrir og það er ekki hægt að lifa á lægsta lífeyri. Og dugði það til? Nei, ekki þessari ríkisstjórn. Hún setti líka lög upp á nýtt um krónu á móti krónu skerðingar á þennan hóp. Dugði það til? Nei, hún fer í dómsmál við þennan hóp sem getur varla varið sig og á varla til hnífs og skeiðar.

Það er kominn tími til að ríkisstjórnin hysji upp um sig varðandi mannréttindi og réttlæti og hætti þessu stríði við verst setta og fátækasta fólkið á Íslandi, fólk sem þau hafa jaðarsett sjálf og þeim ber skylda til að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að þetta fólk, alveg eins og allir aðrir hér á landi, geti lifað mannsæmandi lífi.