152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

störf þingsins.

[14:15]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Herra forseti. Ofbeldi hefur verið mikið í umræðunni og nú langar mig að tala um börn og ungmenni sem beita ofbeldi. Það var í fréttum fyrir ekki svo löngu síðan af hnífsstungu í miðbæ Reykjavíkur og að notað hefði verið barefli til að ráðast á börn í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Sumir hugsa kannski: Þetta hefur alltaf verið svona. Það er engin breyting á ofbeldishegðun barna og unglinga á Íslandi. Staðreyndin er þó sú að það er breyting. Börn ganga t.d. í mun meira mæli með hnífa á sér. Ofbeldisbrot hafa aukist um 63% á síðustu níu árum. Árið 2012 var 71 barn grunað um alvarlegt ofbeldisbrot en á síðasta ári voru það 170 börn. Það er 140% aukning hjá börnum sem grunuð eru um alvarleg ofbeldisbrot. Brotum hefur einnig fjölgað til muna, úr 78 brotum í 219 brot á síðustu níu árum. Það er 180% fjölgun ofbeldisbrota hjá börnum. Ofbeldi er að aukast á Íslandi og ekkert er í því gert. Árið 2020 voru 90 börn 17 ára og yngri á sakaskrá lögreglu. Sakaskrá, hvað þýðir það fyrir barn að vera á sakaskrá? Hverju er verið að ná fram með því að setja börn á sakaskrá? Hvað gerist? Hætta börn að brjóta lög? Nei, ekki ef skoðað er hversu margir eru grunaðir um ofbeldisbrot og miðað við það að brotin eru mun fleiri en þeir sem eru grunaðir um brotin. Börnum á sakaskrá líður oft eins og þau hafi brugðist fjölskyldum sínum. Þeim líður oft eins að þau eigi sér ekki viðreisnar von vegna þess að þau eru 17 ára og komin á sakaskrá. Hvaða skilaboð erum við sem samfélag að senda barni þegar það er formlega komið á sakaskrá — sem hvað þá, sem glæpamaður? Þegar börn hugsa til framtíðar eru þau oftast ekki að hugsa: Hvað verður eftir fimm ár? Börn upplifa líf sitt búið, að það skipti ekki máli hvað þau gera í framhaldinu því að þau eru hvort eð er búin að eyðileggja líf sitt með því að vera komin á sakaskrá.