störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum. Um langt skeið hafa verið uppi hugmyndir um að bæta sjúkraflutninga á Suðurlandi. Í kjölfar krafna sveitarfélaga og hagsmunaaðila og skýrsluskrifa, þar sem nýting og þörf var greind, var ætlunin að fara í tilraunaverkefni með sjúkraflutninga. Því miður hefur ekki enn tekist að fá fjármagn og því búa íbúar Suðurlands við óbreytt ástand varðandi bráðaflutninga.
Suðurlandið er dreifbýlt, nær yfir 31.000 km², og það er ekki einungis að íbúum Suðurlands haldi áfram að fjölga heldur fer stærsti hluti erlendra ferðamanna sem hingað kemur um landshlutann. Því til viðbótar eru um 60% allra sumarbústaða á landinu í landsfjórðungnum. Sú mikla uppbygging sem orðið hefur á svæðinu hefur aukið álag á opinbera grunnþjónustu og skiptir þá engu hvort átt er við heilbrigðisþjónustu eða aðra bráðaþjónustu, svo sem sjúkraflutninga og löggæslu. Verkefni þessara aðila tengjast, svo sem vegna slysa. Stórslys hafa því miður reglulega koma upp á svæðinu þar sem gengið er mjög á getu þessara aðila til að geta haldið uppi annarri þjónustu.
Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu eiga allir landsmenn að eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem kostur er á. Það liggur hins vegar fyrir að þrátt fyrir að sérhæfing á sjúkrastofnunum á Suðurlandi hafi verið að aukast er horft til Reykjavíkursvæðisins þegar stærri og flóknari mál koma upp.
Ég vil skora á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að Sunnlendingar og gestir okkar geti treyst því að hægt verði að bregðast skjótt og örugglega við þegar koma þarf sjúklingum til heilbrigðisstofnana með því að tryggja fjármagn þannig að hægt sé að ljúka við fyrirætlanir um tilraunaverkefni fyrir sjúkraþyrlu sem staðsett yrði á Suðurlandi.