152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:26]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég hef aldrei séð það gerast að forseti Alþingis áminni hv. þingmann eftir sína fyrstu ræðu, jómfrúrræðu, hér í ræðustól. Það gerðist þegar hv. þm. Friðjón Friðjónsson, sár undan því hve meiri hlutanum í Reykjavík gengur vel í húsnæðismálum, vék að umræðu sem átti sér stað hér fyrr í vikunni og uppnefndi Jóhann Pál Jóhannsson og Kristrúnu Frostadóttur. Ég kveð mér hins vegar ekki hljóðs vegna þess enda var forseti með eyrun sperrt og brást við þessu. Hann áminnti þingmanninn um að uppnefna ekki aðra þingmenn. Það sem forseti hefði hins vegar líka þurft að gera er að kenna hinum nýja varaþingmanni þá sjálfsögðu kurteisisvenju að eiga ekki orðastað við fjarstadda þingmenn sem ekki geta bætt sér á mælendaskrá eins og raunin er í störfum þingsins. Þar eigum við siði og venjur og það er eitthvað sem ég vona að hæstv. forseti geri þingmanninum ljóst.