152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:28]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að það er rétt hjá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni að mælst er til þess að þingmenn kalli ekki eftir svörum eða víki ekki að einstökum þingmönnum hér í störfum þingsins þar sem þingmenn eiga ekki kost á að bæta sér á mælendaskrá. En hvað varðar það að minna menn á að gæta orða sinna er það viðvarandi verkefni forseta að takast á við þegar mönnum hitnar í hamsi hér í ræðustól þingsins.