um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég var ekki viðstödd í salnum þegar þessi einhliða orðaskipti áttu sér stað hér. Nú vill svo til að hv. þingmaður sem lét þessi orð falla um mig og samflokksmann minn, hv. þm. Jóhann Pál Jóhannsson, er líka í framboði í Reykjavík. Ég veit ekki hvort viðkomandi þingmaður ætli sér að halda áfram ákveðnum samskiptamáta sem hefur kannski átt sér stað í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins en þannig eigum við ekki samskipti hér á þingi. Við reynum að vera málefnaleg. Við getum auðvitað tekist á um einstaka hluti. Hér var verið að tala um tölur sem voru teknar algerlega úr samhengi en áttu bara mjög vel við í þeirri umræðu sem hér var. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég sem þátttakandi í pólitísku starfi hef orðið fyrir svona, hvað á að segja, orðalagi af hendi samflokksmanna hv. þingmanns þó að flestir hér inni, og allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hafi alltaf talað vel til mín.