um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það fer ekki fram hjá neinum að sveitarstjórnarkosningar eru fram undan. Frambjóðendur eru hver á fætur öðrum að stíga fram og sýna sjálfa sig, fyrir hvað þeir standa og hvað þeir vilja gera eftir kosningar. En mér þykir skjóta skökku við að sjá varaþingmann, sem er að koma inn á þing, nýta pontu Alþingis sér til framdráttar í kosningum sem fram undan eru. Mér þykir með ólíkindum að menn ætli sér að nota Alþingi til að upphefja sjálfa sig og til að koma sér á framfæri í borgarstjórnarkosningum sem fram undan eru 14. maí. Mér finnst þetta ólíðandi. Menn geta bara tekið þennan debatt annars staðar en í þingsölum. Ég ætla ekki að fara að ræða kosningabaráttuna í Reykjanesbæ í sölum Alþingis.